Svefn og svefnlausnir

Námskeið fyrir foreldra með börn á aldrinum 0-12 mánaða

Námskeiðið er einkum ætlað foreldrum barna á aldrinum 0-12 mánaða. Á námskeiðinu er farið yfir svefn og svefnþarfir barna eins árs og yngri, hvað telst eðlilegt svefnmynstur og bent á leiðir til þess að skapa heilbrigt svefnumhverfi. Einnig verður farið yfir hvernig er hægt að skapa góðar svefnvenjur þannig að háttatíminn verði ánægjulegur og áreynslulaus tími fyrir alla fjölskylduna.

Svefn og svefnlausnir er námskeið fyrir alla fjölskylduna þar sem markmiðið er að búa til góðar svefnvenjur með mjúkum aðferðum sem virka til frambúðar. Engin tár, engin læti.

Eftir námskeiðið eiga foreldrar að

  • vita hvað er eðlilegur svefn og hvað eru eðlilegar væntingar til svefns barna á aldrinum 0-12 mánaða.
  • þekkja helstu kosti og galla ólíkra svefnstaða.
  • kunna leiðir til þess að búa til góða svefnrútínu.
  • hafa hugmyndir að því hvernig hægt er að hjálpa barninu að sofna.

Námskeiðið er eitt skipti 2 og ½ tími í senn. Boðið er upp á létta hressingu í hléi.

Verð: 7000.- fyrir foreldra

Ingibjörg Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur og brjóstagjafaráðgjafi, Soffía Bæringsdóttir kennari og doula og Sólveig Reynisdóttir bs. í sálfræði sjá um námskeiðið.

Næsta námskeið er  3. apríl frá 18-20.30

í Vatnagörðum 18m húsnæði Bjarkarinnar.

Skráning á svefnnamskeid@gmail.com




bottom